Hlaðhönd - verslun
Gjafa- og minjagripaverslunin Hlaðhönd
| Hlaðhönd |
Í móttökusal Landnámsseturs er gjafa- og minjagripaverslunin HLAÐHÖND, nefnd eftir Þóru hlaðhönd tengdamóður Egils Skalla-Grímssonar. Verslunin er opin á opnunartímum Landnámsseturs.
Áhersla er lögð á íslenska hönnun og hugvit og hentar vöruúrvalið jafnt íslenskum sem erlendum ferðamönnum og íbúum Borgarbyggðar.
Í versluninni er meðal annars að finna fatnað á börn og fullorðna frá 66° norður, Farmer´s Market, Húfum sem hlæja og Lúka Art & Design og veski frá Aggy Star design.
Meðal hönnuða má nefna Katrínu Jóhannesdóttur (kvenfatnaður úr ull og armbönd úr roði), Ásthildi Thorsteinsson (húfur), Karenu Guðlaugsdóttur (pelskragar úr kanínuskinni), Snjólaugu Guðmundsdóttur (skartgripir úr þæfðum flóka), Ingibjörgu Hönnu Bjarnadóttur og Dagnýju Kristjánsdóttur (glös), Ólöfu Davíðsdóttur (glervörur) og Philippe Richart (spjaldvefnaður).
Þá er þar að finna fjallagrös, jurtate, söl og þang frá Hollustu úr hafinu, sápur frá Sælusápum, snyrtivörur frá Purity Herbs og Villimey og servíettur og gjafakort frá hekluíslandi auk margvíslegs smávarnings.
Í Hlaðhönd fást skartgripir úr horni frá Ritu og Páli í Grenigerði, Lava Design - Hraunlist í Eyjafjarðarsveit, rúnahálsmen frá Alrúnu og eftirmyndir skartgripa frá víkingatímanum.
Í bókaverslun Hlaðhandar er að finna mikið úrval af bókum um Ísland og íslenska náttúru og menningu sem og landakortum sem einkum eru ætluð ferðafólki. Úrval íslenskra bókatitla fer þó vaxandi. Þar fást einnig geisladiskar með vandaðri íslenskri tónlist, hljóðbækur og dvd diskar.













